|
|
27.04.2008 00:54:26 / Eygló
»
09.03.2008 14:49:49 / Eygló
Jæja, það er víst kominn tími á eitt stykki blogg....
Á föstudaginn var alveg über skemmtilegur skóladagur, eða allavega tveir síðustu tímarnir. Við Olga skemmtum okkur nefnilega smá með Mr. Daisy. Og að sjálfsögðu var myndavélin með í för - myndirnar koma örugglega hérna inná þegar ég verð búin að fatta hvernig á að setja linkana í tenglathingyið, annars eru þær bara inná myspace . En já, við skemmtum okkur bara alveg über vel með honum Mr. Daisy, settum hann í skemmtilegar stellingar og svo fann ég föt sem ég klæddi hann í ^^ Gaman gaman!
Í gær gerði ég nú varla eitthvað merkilegt. Eeeen ég er sko ttly komin með "tvíbreytt" rúm, as in ég fæ þann heiður að hafa rúmið hans Birkis inni hjá mér í þessari gay fermingu. Svo fékk maður skemmtilega heimsókn frá gay senditíkum og svona, gaman gaman. Ég komst svo að þeirri niðurstöðu um kvöldið að rúv kann að hafa skemmtilega daskrá, það voru allavega þrjár góðar myndir í röð þetta kvöldið . Jössur.
Í dag er ég nú varla búin að gera mikið. Tók sko ttly myndasyrpu af Birki í baði, ekkert dónalegt samt! Svo er mér að fara í bíó á eftir með Olgu og Birki litla. Við ætlum ttly að fara að sjá Ástrík og ólympíuleikana, það verður alveg hreint ljómandi ljúft! ^^ Happy happy joy joy!
Svo er hún Inga að fara að koma hingað norður til mín á föstudaginn, það verður über.
Mér á svo ttly afmæli á laugardaginn, gaman gaman. Fag að fara að ferðast og svona skemmtilegt, en gaman...

-Eygló
»
21.02.2008 21:37:16 / Eygló
Jæja, ég held að það sé kominn tími á blogg. Bðaaaa...
Á föstudaginn var skóli, surprise surprise. Það var farið upp í brekkuskóla í raungreinatímanum til að fara að sjá eitthvað stjörnuthingy, og þar hitti mér dýrið hann Krissa. Svo labbaði maður bara heim og fékk það "skemmtilega" verkefni að bera upp margar kippur af gosi, en gaman... Svo kom fag til mín um kvöldið.
Það er algjörlega búið að detta út úr hausnum á mér hvað ég gerði á laugardaginn. Man bara að Krissi kom til mín.
Á sunnudaginn gerði ég nú ekkert merkilegt. Meira að segja svo ómerkilegt að ég er alveg búin að gleyma því 
Á mánudaginn var über langur skóladagur, svo fór maður að ná í Birki á leiðinni heim. Og við Krissi vorum sko totally búin að vera saman í þrjá mánuði þennan dag ^^ Gay... Og og og og mamma og Kolbrún áttu sko totally afmæli. En já, Krissi kom til mín um kvöldið og vér gerðum eitthvað skemmtilegt.
Á þriðjudaginn voru tvö próf, íslensku og dönsku. Fékk nokkuð gott á þeim báðum nema á setningahlutagreiningarhlutanum í íslenskuprófinu. Svo fórum við Olga að klára að safna bingóvinningum eftir skóla. Við vorum svo duglegar að við fengum alveg eitt stykki vinning, þessar tvær búðir sem við fórum líka í voru alltof neikvæðar. Mjuff. Eftir að við höfðum skilað af okkur vinningnum í skólann fórum við heim til Olgu og horfðum á Kærleiksbirnina, á íslensku að sjálfsögðu Þessi mynd er best! Fúli er bestur En vér fengum að eigi að klára þessa unaðslegu mynd þar sem að Karen og Sigríður komu og náðu í Olgu. Snarf snarf.
Á miðvikudaginn var þjóðfélagsfræðipróf - en gaman... Eftir skóla fórum við Olga heim til hennar og við kláruðum að horfa á Kærleiksbirnina eftir að hafa fengið okkur vænan mat ^^ "ég er kær, þú ert mér kær", gay... Svo vorum vér bara eitthvað að tala og svona. Fór svo heima og kláraði að horfa á mynd sem ég hafði byrjað á daginn áður á meðan mér var að bíða eftir Krissa. Samkvæmt þessari mynd eru konur eins og kommóður, það er hægt að gramsa endalaust í þeim ^^ Fórum svo valhoppandi að ná í Birki á leikskólann, við erum fags Horfðum svo totally á Scream, langt síðan maður hefur séð þessa úrvals mynd.
Í dag var über langur skóladagur, mjuff. Samt ekki... Allavega ekki fyrir mig sem þarf ekki að vakna fyrr en um áttaleytið af því að ég er ekki í leikfimi. Það er yndislegt Við Olga gerðum okkur ferð í hagkaup í hádegishlénu og keyptum okkur vænar franskar, nammnammnammnamm. Ég held því samt staðfastlega fram að við höfum borðað alltof mikið og alltof hratt. Og gosið hjálpaði ekki mikið til Svo mætti maður í samfélagsfræðivalspróf með vel útblásinn maga og svona Okkur tókst líka að gerast algjörir snillingar og bíða eftir tíma í tuttugu mínútur sem var svo ekki ^^ Annars er ég síðan bara búin að vera að læra eitthvað síðan ég kom heim, alveg gífurlega spennandi.... Ég þarf nefnilega að fara í eitt próf í viðbót á morgun, yayness! 8-) Svo kemur langþráð fjögurra daga helgarfrí 
En jæja, ætli maður haldi ekki áfram að reyna að læra eitthvað...

-Eygló
»
17.02.2008 15:53:36 / Eygló
www.myspace.com/eyglobyfluga
»
31.01.2008 20:16:03 / Eygló
Jæja, fyrst að ég hef nákvæmlega ekkert að gera er alveg tilvalið að blogga  En jáá, kannski maður segi eitthvað frá síðustu dögum. Á mánudaginn gerði ég nú ekki mikið, fór í skólann og svona leiðinlegt thingy. Og og og og og svo var síðasti Heroes þátturinn um kvöldið! Mjuff... Og að sjálfsögðu þurfti helvítis endinn á þessari seríu að vera "to be continued...", það var über mikið bögg. Á þriðjudaginn gerðist ég alveg gífurlega dugleg og fór með Krissa á opið hús í glerárskóla. Það var fínt, skrautlegt fólk þarna ^^ Að sjálfsögðu datt ég á alveg glæsilegan hátt á leiðinni þangað! Krissi átti að detta líka... Mjuff. Í gær kom Krissi í skólann og vér fórum heim til mín, svo gerðist mér alveg über dugleg og kvenmannaðist á meðan dýrið fékk að vera í heimspekitíma Og og og og og svo kom dýrið aftur til mín og mér gerði franskar fyrir svanga fólkið ^^ Svanga fólkið as in mér og dýrið. Svo lá maður bara í leti um kvöldið eftir að hafa kvenmannast meira, glápa á sjónvarpið - jössur. Í dag var mér veik heima. Búin að horfa á einhvern barnatíma með Birki og svo að sjálfsögðu hinir yndislegu Charmed þættir Annars er þetta búinn að vera alveg über leiðinlegur dagur. En það má þakka öllu skemmtilega fólkinu á msn fyrir að gera hann betri, sérstaklega honum Júlíusi sem segir alltaf eitthvað svo skemmtilegt sem meikar nákvæmlega engann sense - sem er bara alveg ljómandi  Núna er mér like ttly alein með þessa síðu, sem er alveg fínt. En kannski maður reyni að finna sér einhverja manneskju til að vera með hana með mér... Annars er ég eiginlegea varla að nenna að vera með þessa síðu lengur -mér er búin að vera svo dugleg að halda þetta út í allavega eitt og hálft ár. En mér er farin að gera eitthvað gáfulegt... 
Lag bloggsins: Avantasia - Avantasia -Eygló
»
29.01.2008 01:37:12 / TinTin
Yeah... People... I'm going solo. Mí not nenn ðiss síða man. Arrivederci
»
24.01.2008 17:24:45 / TinTin
Jeeeeeij... það er komið prófafrí! Wheeee! Mér dettur ekkert í huuug. Það er ekkert að gera. Ég fór í gamla skólann minn í dag í fimm mínútur og fékk náttúrulega"indælar" móttökur eins og venjulega. Kom ekki litla kindin og hélt því fram að það ætti að rýma staðinn vegna "ógeðs". Gamall og góður brandari sem engum fannst fyndinn. Jón Haukur kom hinsvegar með gott skot og spurði hvort ég ætti eitthvað gaddabelti sem var þarna á slangri og lét heyra aðeins í því. Um að gera að vera svona frumlegur. Ég er að horfa á skólahreysti. Ég skil ekki hvað fólki finnts svona leiðinlegt við þetta. Mér finnst þetta ágætis sjónvarpsefni sem hefur bara skánað með aulabröndurum frá Jónsa sem ég held að sé betri sjónvarpskynnir en flugfreyr. O jæja, ég veit svosem ekkert um það. Síðasti leikur Íslands á EM í dag var á móti Spáni og þeir tóku okkur í nefið eins og við var að búast enda eru þeir andskoti góðir spánverjarnir. Ég er búin að fá flestar einkunnirnar mínar og fékk níu í leikfimi. Það fannst mér svolítið fyndið... Aaaah ég hef ekkert að skrifa uuum... Ja, Heath kallinn Ledger er dáinn. Ég hélt ég myndi ekki verða svona sorgmædd við fréttir eins og þessar. En þetta er sorglegt, hann var nokkuð góður leikari og lék í mjög góðum myndum eins og A Knight's Tale og Sin Eater. Hans verður minnst. Lag Bloggsins: Black Diamond - KISS Tinna

»
21.01.2008 14:07:39 / Eygló
Váá hvað mér leiðist, það er nákvæmlega ekkert að gera. Svo hvað er hægt að gera annað en að blogga eitthvað über tilgangslaust? Hér situr mér og er búin að yfirtaka fartölvuna hans Dagbjars, og ég er sko að horfa eða reyndar hlusta á myndina þarna þarna þarna þarna þarna...Happily Never After! Jössur ^^ Aðalgaurinn í myndinni væri alveg voðalega fallegur ef hann væri mennskur. Ég ætla bara að þegja... KAAAAAAAAAAAAAAAKÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓ  En jæja ég er ekki búin að vera að gera eitthvað gífurlega merkilegt síðustu daga, aðallega hanga með Krissa og svona skemmtilegt  Ég gerðist alveg über dugleg og LALLAÐI alla leiðina til hans í gær, duglega duglega ég. En ég get nú ekki sagt að þetta sé eitthvað sérstaklega löng leið, það var hins vegar vesen að labba þetta allt of vel klædd í flatbotna háum hælum. En neeeeei, mér tókst ekki að detta glæsilega á leiðinni þangað eins og ég datt á síðasta þriðjudagskvöld. Það var dúndursamlegt ! ^^ En jæja, við ætluðum sko að horfa á Spiderman! En þar sem að þetta var aleg gífurlega leiðinleg mynd gáfumst við að sjálfsögðu upp og horfðum á eina klassíska í staðinn. Detroit Rock City Hún móðir mín gerðist alveg über góð og náði í mig, annars hefði ég breyst í frostpinna á leiðinni, asmt ekki... Alltof heitt fyrir mig að labba úti í þessu veðri í tveimur peysum, neinei ég er alls ekki með asnalegan líkamshita  En jæja, ég gerðist dugleg einhverntímann fyrir stuttu og bætti inn myndum hérna. Ég þarf að fara að verða duglegri að troða myndavélinni framan í fólk, þá koma nefnilega fleiri myndir hérna inná ^^ Það væri geeeeeðveikt böggandi fyrir fólkið sem lenti í því  Mjá, svo er spurning um hvað maður eigi að athafast í kvöld... Er ekki málið að hanga yfir sjónvarpinu? Það er allavega góð dagskrá í dag Kannski ég velji frekar að eiga mér líf, held það nú bara... En jæja, ég ætti að fara að vera félagsskapur fyrir litla veika bróður minn. Það kemur nefnilega fyrir að ég verði góða stóra systirin Allavega búin að vera það í dag, eeeeða það sem er búið af deginum  Veriði blessuð! 
-Obbulitla Eygló
»
16.01.2008 17:11:49 / TinTin
Þú færð það ekki... Barnaefnið á stöð tvö er í gangi fyrir framan mig og í því er einn heilaþvegnasti þáttur sem ég hef á ævi minni séð. Þau eru að segja hvað eftir annað: "Þetta gerir mig svooooo hamingjusama!" Það böggar mig svo mikið. Og núna er þau að öskra á eitthvað gult fýlutröll. Og dansa gleðidans. Híhí ^^ Mig langar svo að fara að sofa. Pabbi er farinn til Noregs og mig langaði með... en neii, ég er í prófum. Hefði varla fengið að fara með hvort sem er. Mig langar samt . EM í handbolta. Talandi um, þá er Ísland - Svíþjóð á morgun ^^. Nei, ég er ekki að trippa yfir EM... Alls ekki. Svo er MA - ME í kvöld ... Allir að stilla á Rás 2 í kvöld Er það ekki bara ME með rjóma á? Annars hef ég ekkert sérstaklega merkilegt að skrifa um... Reyndar finnst mér þetta mál um að leyfa berbrysti (orð? hardly....) í sænskum sundlaugum svolítið áhugavert. Hvers vegna myndu konur berjast fyrir því að fá að fara berbrjósta í sund? Allaveganna myndi ég ekki gera það. Brjóst eru stór hluti af dulúð kvenna og það finnst mér svolítið skemmtilegt. En það er víst bara ég... Lulzy mynd...
Látum þessu lokið í dag... Tinna
»
13.01.2008 22:04:05 / Eygló
Ég ætla að vera alveg über dugleg og blogga. Þar sem að ég hef víst ekki verið neitt rosalega dugleg við það að undanförnu. Well, í gær kom Krissi til mín og vér fórum sko í bíó seint um kvöldið. Á myndina I Am Legend Þetta var hin fínasta mynd, og mér tókst meira að segja að fara að gráta yfir henni ^^ Í dag vaknaði ég über snemma, sem sagt klukkan svona tíu. Það finnst mér alltof snemmt. Og ég fékk mér sko apaís! Meira að segja þrjá, apaís er lang bestastastastastastastastastastastastur! ^^ En jáá, svo gerðist ég über dugleg og fór með mömmu og Birki í sveitina, og hann Krissi fékk líka að koma með. Jájájájá. Hann Einar Pálmi átti sko tveggja ára afmæli svo að við fengum að sjálfsögðu köku Nammnammnammnamm. Og við Krissi og Birkir horfðum á prinsessuna og durtana, þessi mynd er best! ^^ Og svo púsluðum við Krissi turtles púsl! Eða eiginlega svona að mestu ég, hann hjálpaði bara smá til Hann Bjartmar káfaði á Krissa, það var svooo fyndið ^^ En jæja, að sjálfsögðu tók ég myndavélina með svo að það koma 32 stykki af myndum hérna inná á eftir eða eitthvað. Mjög skemmtilegar myndir af Birki ^^ 



Lag bloggsins: The Flame Still Burns - Jimmy Nail -Eygló
»
12.01.2008 20:05:44 / TinTin
Ég er að deyja. Stærðfræðin er að drepa mig. Ég er búin að glósa tíu blaðsíður í dag og reikna í kringum tuttugu. Og ég er hrædd um að það verði mitt banamein. Ég er orðin næstum alveg GA-GA! Hrikalega vorkenni ég 103 fólkinu. On the more bright side of things... Mér leiðist. Ég hef ekkert að gera. En það er allt í lagi þar sem að ég þarf ekki að reikna meira eins og... a^2+ab+ac+bc= a(a+b) + c(a+b) = (a+b)(a+c)! Yay's to that ^^. Ég var líka að spá í dag. Hvað er málið með svona mormónacults, sem eru varla mormónar lengur, þar sem að kallarnir eiga svona 10 konur og 80 krakka? Það finnst mér helvíti sjúkt. Í sjálfu sér er ekkert að því að kall eigi tíu konur og áttatíu krakka, ef að það eru allir sáttir (fyrir utan úrkynjun og svo framvegis). En í þessum samfélögum er fólk undir einhverjum einum spámanni sem ákveður hver giftist hverjum, það fær litla sem enga menntun og það er svo gjörsamlega heilaþvegið að það þorir ekki að fara því að það er búið að prenta það svo á sálina á þeim að þau muni brenna í helvíti að eilífu ef þau fari. Og svona samfélög eru til í alvörunni, í Dr. Phil fyrir nokkrum dögum var verið að tala við tvær stelpur sem að sluppu úr svona samfélagi í Bandaríkjunum. Þeim var tildæmis sagt að svart fólk væri handabendi djöfulsins og ef maður tæki í höndina á þeim yrði maður svartur líka. Þeim hafði verið kennt að konur væru bara á jörðinni til að þóknast manninum og ala honum börn. Djúúúúpar pælingar þarna. Mér dettur ekkert skemmtilegt í hug. Mig langar út. Allir að gera eitthvað. Vðaaaaa... Lag bloggsins : Cover of the Rolling Stone - Poison (eða Dr. Hook, fer eftir skapi) Tinna sem er að deyja úr Stærðfræði 102.
»
10.01.2008 21:46:00 / TinTin
Yes indeed. Prófin eru byrjuð. Dúmmdúmmdúmmdúmmmm... Ég er að taka mér lærdómshlé. Ákvað að blogga smá. Yaaayy... Hann Hrói er að fara koma norður. Jössur! Eftir litla 48 daga! . Það finnst Tinnu voða gaman ^^. Svo eru bara 152 dagar í Whitesnake ("bara" sem er ekki einu sinni víst að ég komist á -__-. Nei Tinna! Ekkert svona bull! Þú ferð. ... *væl* ég vona það... Annars hef ég ekkert skemmtilegt að blogga um. Buxurnar mínar rifnuðu í dag. -________- Þvílíkt bögg. Einu buxurnar mínar sem ég actually geng í. Og það í klofinu svo ég get eiginlega ekki gengið í þeim nema gera við þær eða að vera í einhverjum leggings innanundir sem ég get heldur ekki því það eru göt í klofinu á þeim líka! Og mér nennir hvorki né getur gert við þetta drasl... Mjuff! Bróðir minn er loksins byrjaður að lesa Harry Potter. Ég vissi að það myndi koma að því einn daginn! Hann er líka kominn með þvílíkt Harry Potter æði og svo framvegis. Mér hefur lúmskt gaman af því. Lag bloggsins: Mrs. Robinson - Simon&Garfunkel Tinna
»
06.01.2008 23:52:25 / TinTin
Hér liggur mér á kúðanum mínum og bloggrar. En um hvað skulum vér bloggra? Góð spurning Tinnmundur, góð spurning. Ojæææja... Mér man ekki hvað mér gjörði á nýársdaginn. Eigi daginn eftir. Þann þriðja drattaðist mér til að læra örlítið. Svo kom fjórði janúar og minns fór í skólann. Nú eru prófin að fara að láta sjá sig og þá fyrst íþróttafræði! Jeiiij ... Svo seinna um daginn fórum vér Glókolla (Múhaha ich bin so EVIL!!) á hljómsveitaræfingu með Mordlust (Krisskriss, Sindri og félagar [félagar = Maggi, Bene og... hann þarna... Dagur!]). Það var skemmtilegt. Vér löbbuðum með þeim til að ná í þessar "skemmtilegu" pizzur sínar, sveittar búkollur. Sem er ekki sérlega fögur pizza né bragðgóð hljómandi. Nautakjöt og bernaisssósa (how ever the fuck you write that) og eitthvað fleira. Vðakk. En allaveganna... það var gaman og vér tókum nokkrar myndir. 
Búkolla... vðakk... Í gær gerði mér... ekkert? Jújú, mér "passaði" með ömmu og fór svo til Smáglóar og vér horfðum sko á Pride and Prejudgies! Svo kom Krissi litli og vér gerðum... ekki neitt. Svo fór mér heim og... gerði ekkert. Sounds fun huh? Í daaaag... Var ég dauð til svona hálffimm, hafði ekkert að gera. Svo komu Sólveig amma og Lilja langamma í mat. Yaaay... ojæja það var ekki svo slæmt. Faaaaallegur svipur ekki satt :Æ?
Tintin segir blessbless, Tintin segir blessbless!
»
01.01.2008 03:23:14 / Eygló
Jæja, þá er þetta nýja ár víst gengið í garð. Flugeldarnir loksins hættir, eða svona næstum því... Fyrir utan þetta fólk hérna fyrir utan sem er að einhverfast með skotblys... En jáá, í morgun leiddist mér alveg rosalega mikið, svo að ég horfði þrisvar sinnum í röð á Rocky Horror Picture Show og hengdi upp heeeeeeling af myndum á meðan. Já ég á það til að vera mjöööög einhverf ^^ Svo sofnaði ég víst yfir þessari heittelskuðu mynd minni. Þegar ég var vöknuð og búin í sturtu og öllu var mér sagt að fara í kjól, gosh... En well, það var bara fínt að vera í níðþröngum svörtum kjól - mér eeeeeelskar hann Neinei, mér finnst alls ekki gaman að vera í þröngum fötum sem sýna líkamann ^^ En jáá, hann Krissi kom um kvöldið - svo hljóðlega að ég tók ekki eftir því að hann væri kominn fyrr en ég labbaði inn í herbergi og sá hann bara þar. Gaman að því... Ég gerðist alveg über ömurleg við hann og lét hann horfa á Rocky Horror Picture Show Það er hægt að horfa eeeeendalaust á þessa mynd Eða ég get það allavega... En jæja, gleðilegt nýtt ár  
Birkir með rauðan varalit á nefinu og gay hatt... 





Krissi með gyðingahattinn sem hann var neyddur til að vera með ^^ oooooog stjörnuljós! Lag bloggsins: I Don't Believe In Love - Queensrÿche -Eygló
»
31.12.2007 01:10:39 / Eygló
30. desember 
Jæja, mér ætlar að vera alveg über dugleg og skella inn einu stykki af brakandi fersku bloggi, mjá  Svoooo að, mjá mér vakti að sjálfsögðu í alla nótt. Mér leiddist svo mikið að ég breytti herberginu mínu smá, samt bara aðeins. Sumar manneskjur eiga mjööööög erfitt með að venjast því eins og það er núna ^^ Eins og til dæmis hann herra Kristófer Mér skal bara þegja... En jáá, mér gerði sem sagt über breytingar á þessu "litla" herbergi mínu. Sem er bara unaðslegt af því að það var búið að vera eins og það var í svona einn og hálfan mánuð, sem sagt og lengi. Mér bara þurfti að breyta  Well, svo kom hann Krissi til mín um kvöldið. Váá, mér kallaði hann ekki dýr! ^^ Svo kom Tinna til okkar stuttu seinna. Við eyddum alveg heillöngum tíma í að finna einhverja mynd til að horfa á, það var erfitt. En að sjálfsögðu fann mér skemmtilega mynd til að horfa á! Bad Boys. Ekki þessi með Will Smith og honum gaurnum, þessi er sko með fallegum síðhærðum Sean Penn Neinei, mér eeeeeelskar alls ekki fallega karlmenn með sítt hár ^^ En við tókum alveg 22 myndir, sem mér er að vinna í að uploada núna. Og þær koma svo að sjálfsögðu hérna inná eftir smástund, þetta er nefnilega alveg að verða búið Þá getiði séð mörg skemmtileg svipbrigði hjá Krissa ^^ Ég held ég hafi bara náðum tveimur myndum af honum þar sem hann var ekki með alveg fáránlegan svip, mjámjámjámjá... Jæja, svo er víst gamlársdagur og kvöld á morgun, þá fáum vér Tinnið að komast í hárið hans Krissa. Það verður gaman  Það er að koma nýtt ár, það er að koma nýtt ár, það er að koma nýtt ár og það er að koma nýtt ár. Jössur!  
Awwww, litli bróðir minn er betrari en þinn! ^^ Mjúhúhú... 

Ooooooomg, brjóstaskora! oooooooomg... ^^ 
Lag bloggsins: Wild Angels - Pretty Boy Floyd -Little Miss Vixen
»
Síður: 1 2 3 ... 17
|
|